Ath. HBO Símans er EKKI það sama og HBO Max þar sem ekkert Warner Bros efni er hjá Símanum. Nánar

Leiðbeiningar

Leiðbeiningar fyrir að setja upp og horfa á Discovery+ ...
Apple tæki (Apple TV/iPhone/iPad) með iTunes inneign
Hér er greitt fyrir Discovery+ áskriftina með iTunes inneign.

Setja upp Discovery+ á iTunes
  1. Til að byrja með þarftu að hafa iTunes / App Store reikninginn þinn stilltan á Bandaríkin og hafa næga iTunes inneign (sem fæst hjá okkur í formi iTunes inneignarkóða) á þeim reikningi til að borga fyrir Discovery+ áskrift; Leiðbeiningar við hvernig eigi að innleysa iTunes inneignarkort.
  2. Sæktu Discovery+ appið á Apple/iOS tækinu þínu frá AppStore.
  3. Opnaðu appið og veldu "Start Your Free Trial"
  4. Það er möguleiki að Discovery+ biðji þig um að fara á vefsíðu til að klára ferlið.
  5. Kláraðu að stofna Discovery+ reikning og fylgdu leiðbeiningunum sem birtast á skjánum. Nú ætti Discovery+ aðgangurinn að vera tilbúinn.

Að reynslutímanum liðnum verður áskriftin gjaldfærð af iTunes reikningnum þínum mánaðarlega. Þú getur stjórnað áskriftinni í iTunes Store, undir liðnum Account og Manage Subscriptions.

Fylgdu eftirfarandi leiðbeiningum ef þú vilt stöðva áskriftina um óákveðinn tíma:
  1. Opnaðu iTunes á tölvunni þinni og veldu síðan iTunes Store.
  2. Smelltu á netfangið þitt ofarlega vinstra megin í iTunes forritinu og veldu Account.
  3. Sláðu inn lykilorðið þitt í gluggann sem birtist.
  4. Nú birtist síða með upplýsingum um iTunes aðganginn þinn. Flettu neðst, að liðnum „Subscriptions“ og veldu Manage.
  5. Hér getur þú gert Discovery+ áskriftina þína óvirka. Ef þú vilt gera hana virka aftur, er það gert á sama stað og hún er gerð óvirk, eða á Apple TV.
Discovery+ yfirlitssíða



Skilareglur
Inneignarkóðar eru ekki endurgreiddir og það er ekki hægt að skila þeim. Ef vandamál koma upp munum við senda þér annan kóða án auka kostnaðar, svo lengi sem eldri kóðinn hafi ekki verið notaður.

Nauðsynlegt er að senda skjáskot eða ljósmynd af villunni ekki seinna en 30 daga frá kaupum.

Athugið að við berum ekki ábyrgð á kóðum sem hafa verið áframseldir af kaupanda.