Disney+ kostar nú aðeins $1 (140 kr.) auka sem ábót á allar Hulu áskriftir!! Nánar

Leiðbeiningar

Apple tæki (AppleTV/iPhone/iPad) með iTunes inneign - ekki hægt lengur (Okt 2024)
Öll tæki með Hulu inneignarkóða

Innleysa Hulu inneignarkort
  1. Opnaðu vefsíðuna www.hulu.com og sjáðu til þess að þú sért ekki innskráð(ur); ef nafn þitt birtist efst uppi til hægri þarftu að velja "Log out" úr lista sem dettur niður þegar þú lætur músarbendilinn yfir nafnið.
  2. Opnaðu nú vefsíðuna www.hulu.com/gift.
  3. Sláðu inn Hulu inneignarkóðann og smelltu á Redeem. Ef villan "HBL-22 Redemption Service Unavailable" kemur upp þá vinsamlegast skiptið yfir í snjallsíma sem er tengdur á farsímaneti (ekki wi-fi) og reynið aftur með þessum sömu leiðbeiningum.
  4. Nú birtist valkostur hvort þú vilt taka grunnáskrift með eða án auglýsinga.
  5. Nú birtist form sem þú skalt fylla út. Ef skilaboð birtist eftir að þú hefur slegið inn netfangið þitt um að þú eigir aðgang núþegar, þá smelltu á "log in" hluta þess texta til að innskrá þig. Ef þetta kemur ekki upp skaltu klára að fylla út formið og þar með nýskrá þig á Hulu.
  6. Ef beðið er um póstnúmer (bandarískt zip code) er best að slá inn 10020.
  7. Njóttu!




Skilareglur
Inneignarkóðar eru ekki endurgreiddir og það er ekki hægt að skila þeim. Ef vandamál koma upp munum við senda þér annan kóða án auka kostnaðar, svo lengi sem eldri kóðinn hafi ekki verið notaður.

Nauðsynlegt er að senda skjáskot eða ljósmynd af villunni ekki seinna en 30 daga frá kaupum.

Athugið að við berum ekki ábyrgð á kóðum sem hafa verið áframseldir af kaupanda.