Ath. HBO Símans er EKKI það sama og HBO Max þar sem ekkert Warner Bros efni er hjá Símanum. Nánar

Leiðbeiningar

Leiðbeiningar fyrir að setja upp og horfa á HBO MAX ...
Apple tæki (Apple TV/iPhone/iPad) með iTunes inneign
Hér er greitt fyrir HBO MAX áskriftina með iTunes inneign.

Setja upp HBO MAX á iTunes
  1. Til að byrja með þarftu að hafa iTunes / App Store reikninginn þinn stilltan á Bandaríkin og hafa næga iTunes inneign (sem fæst hjá okkur í formi iTunes inneignarkóða) á þeim reikningi til að borga fyrir HBO MAX áskrift; Leiðbeiningar við hvernig eigi að innleysa iTunes inneignarkort.
  2. Sæktu HBO MAX appið á Apple/iOS tækinu þínu frá AppStore. (Appið er nú þegar til staðar á Apple TV 3&4)
  3. Opnaðu appið og veldu "Start Your Free Trial"
  4. Það er möguleiki að HBO biðji þig um að fara á vefsíðu til að klára ferlið.
  5. Kláraðu að stofna HBO MAX reikning og fylgdu leiðbeiningunum sem birtast á skjánum. Nú ætti HBO MAX aðgangurinn að vera tilbúinn.

Að reynslutímanum liðnum verður áskriftin gjaldfærð af iTunes reikningnum þínum mánaðarlega. Þú getur stjórnað áskriftinni í iTunes Store, undir liðnum Account og Manage Subscriptions.

Fylgdu eftirfarandi leiðbeiningum ef þú vilt stöðva áskriftina um óákveðinn tíma:
  1. Opnaðu iTunes á tölvunni þinni og veldu síðan iTunes Store.
  2. Smelltu á netfangið þitt ofarlega vinstra megin í iTunes forritinu og veldu Account.
  3. Sláðu inn lykilorðið þitt í gluggann sem birtist.
  4. Nú birtist síða með upplýsingum um iTunes aðganginn þinn. Flettu neðst, að liðnum „Subscriptions“ og veldu Manage.
  5. Hér getur þú gert HBO MAX áskriftina þína óvirka. Ef þú vilt gera hana virka aftur, er það gert á sama stað og hún er gerð óvirk, eða á Apple TV.
Við mælum einnig með ítarlegum leiðbeiningum fyrir HBO MAX á Einstein:
Notaðu HBO NOW á Íslandi - 
HBO MAX yfirlitssíða



Skilareglur
Inneignarkóðar eru ekki endurgreiddir og það er ekki hægt að skila þeim. Ef vandamál koma upp munum við senda þér annan kóða án auka kostnaðar, svo lengi sem eldri kóðinn hafi ekki verið notaður.

Nauðsynlegt er að senda skjáskot eða ljósmynd af villunni ekki seinna en 30 daga frá kaupum.

Athugið að við berum ekki ábyrgð á kóðum sem hafa verið áframseldir af kaupanda.