Ath. HBO Símans er EKKI það sama og HBO Max þar sem ekkert Warner Bros efni er hjá Símanum. Nánar

Leiðbeiningar

Leiðbeiningar fyrir að setja upp og horfa á Paramount+ ...
Öll tæki með Paramount+ inneign
Áskrift að Paramount+ sem er greidd með Paramount+ inneign.

Hvernig á að innleysa Paramount+ inneignarkóða

NÝIR NOTENDUR:
  1. Opnaðu vafra (við mælum með Google Chrome) og farðu á www.paramountplus.com/gift.
  2. Sláðu inn Paramount+ inneignarkóðann. Smelltu á Redeem hnappinn.
  3. Veldu áskriftarleið (með eða án auglýsinga)
  4. Sláðu inn nafn, netfang, lykilorð, fæðingardag, kyn og póstfang (zip code). Smelltu á Continue.
  5. Kláraðu að setja upp aðganginn eftir leiðbeiningum á Paramount+.

SKRÁÐIR NOTENDUR:
  1. Opnaðu vafra (við mælum með Google Chrome) og farðu á www.paramountplus.com.
  2. Smelltu á Sign In og innskráðu þig með netfangi og lykilorði.
  3. Smelltu á Account og svo Redeem Gift Card.
  4. Sláðu inn Paramount+ kóðann og smelltu svo á Redeem hnappinn.
  5. Veldu áskriftarleið ef beðið er um það (með eða án auglýsingum).
  6. Kláraðu að setja upp aðganginn eftir leiðbeiningum á Paramount+.
Apple tæki (Apple TV, iPhone, iPad) með iTunes inneign
Hér er greitt fyrir Paramount+ áskriftina með iTunes inneign.

Setja upp Paramount+ á iTunes
  1. Til að byrja með þarftu að hafa iTunes / App Store reikninginn þinn stilltan á Bandaríkin og hafa næga iTunes inneign (sem fæst hjá okkur í formi iTunes inneignarkóða) á þeim reikningi til að borga fyrir Paramount+ áskrift; Leiðbeiningar við hvernig eigi að innleysa iTunes inneignarkort.
  2. Sæktu Paramount+ appið á Apple/iOS tækinu þínu frá AppStore.
  3. Opnaðu appið og veldu "Start Your Free Trial" eða "Sign Up"
  4. Kláraðu að stofna Paramount+ reikning og fylgdu leiðbeiningunum sem birtast á skjánum. Nú ætti Paramount+ aðgangurinn að vera tilbúinn.

Að reynslutímanum liðnum verður áskriftin gjaldfærð af iTunes reikningnum þínum mánaðarlega. Þú getur stjórnað áskriftinni í iTunes Store, undir liðnum Account og Manage Subscriptions.

Fylgdu eftirfarandi leiðbeiningum ef þú vilt stöðva áskriftina um óákveðinn tíma:
  1. Opnaðu iTunes á tölvunni þinni og veldu síðan iTunes Store.
  2. Smelltu á netfangið þitt ofarlega vinstra megin í iTunes forritinu og veldu Account.
  3. Sláðu inn lykilorðið þitt í gluggann sem birtist.
  4. Nú birtist síða með upplýsingum um iTunes aðganginn þinn. Flettu neðst, að liðnum „Subscriptions“ og veldu Manage.
  5. Hér getur þú gert Paramount+ áskriftina þína óvirka. Ef þú vilt gera hana virka aftur, er það gert á sama stað og hún er gerð óvirk, eða á Apple TV.

Aðalsíða Paramount+



Skilareglur
Inneignarkóðar eru ekki endurgreiddir og það er ekki hægt að skila þeim. Ef vandamál koma upp munum við senda þér annan kóða án auka kostnaðar, svo lengi sem eldri kóðinn hafi ekki verið notaður.

Nauðsynlegt er að senda skjáskot eða ljósmynd af villunni ekki seinna en 30 daga frá kaupum.

Athugið að við berum ekki ábyrgð á kóðum sem hafa verið áframseldir af kaupanda.